Skip to content
Í þessum kafla

Skútan

https://skutan.samgongustofa.is

Lögskráningarkerfi sjómanna

Kennslumyndband

Innskráning

Lögskráningaraðilar skrá sig inn með rafrænum skilríkjum í gegnum


Ef ekki tekst að skrá sig inn - Spurt og svarað

Þeir sem ekki hafa aðgang til að lögskrá (eða vilja lögskrá á fleiri skip) geta sótt um lögskráningaraðgang hér

Listi skipa

Eftir innskráningu birtist listi yfir þau skip sem lögskráningaraðili hefur heimild til að lögskrá á. Smellt er á skipaskrárnúmerið og opnast þá lögskráningarsíða skipsins.

2941HERJÓLFUR VE-30
2350ÁRNI FRIÐRIKSSON RE-77

Ábending

Ef notandi hefur einungis heimild til að lögskrá á eitt skip birtist lögskráningarsíða skipsins beint eftir innskráningu.

Merking tákna

Lögskráð hefur verið í stöðuna
Ekki er skylt að lögskrá í stöðuna
Ekki er búið að lögskrá í stöðuna

Lögskráningarsíða skips

Eftir að skip hefur verið valið birtist lögskráningarsíða skipsins.

Lágmarksmönnun skip og lögskráðir einstaklingar

Lögskráning einstaklings

Til að velja einstakling sem lögskrá á er smellt í reitinn Kennitala/Nafn einstaklings og nafn eða kennitala skráð.

Næst er staðan valin úr fellivalmyndinni:


Áður lögskráðir á skipið

Hægt er að velja úr fellilista einstaklinga sem hafa áður verið á lögskráðir á skipið með því að smella á


Lögskráðir einstaklingar og afskráningar

Listi birtist yfir alla lögskráða einstaklinga á núverandi dagsetningu. Hægt er að afskrá alla lögskráða einstaklinga með því að smella á Afskrá alla. Til að afskrá einstakling er smellt á x táknið hægra megin í töflunni.


Stöðubreyta

Ef stöðubreyta á einstaklingi er smellt á táknið sem sést í töflunni hér að ofan og birtist skjámyndin:


Samsettar stöður

Skipstjóri er líka smáskipavélavörður

Skipstjóri (SS) þarf að vera handhafi gilds skipstjórnarskírteinis <12 m og má einnig vera smáskipavélavörður (SSV) ef hann hefur þau atvinnuréttindi. Við lögskráningu er þá valin samsett staða - Skipstjóri/smáskipavélavörður (SS/SSV):


Samsett staða - Skipstjóri/smáskipavélavörður

Skipstjóri er líka smáskipavélavörður

Stýrimaður (SS) þarf að vera handhafi gilds skipstjórnarskírteinis <12 m og má einnig vera smáskipavélavörður (SSV) ef hann er hefur þau atvinnuréttindi. Við lögskráningu er þá valin samsett staða - Stýrimaður/smáskipavélavörður (SS/SSV):

Samsett staða - Stýrimaður/smáskipavélavörður (SS/SSV)